Sérsniðnar hópferðir
frá Íslandi út í heim

Sendu okkur línu       Bókaðu samtal

Sérsniðnar hópferðir
frá Íslandi út í heim

Hvað er útþrá?

Við Íslendingar þekkjum útþrá vel. Ferðagleðin býr í okkur og löngunin að uppgötva heiminn er sterk.

Útþrá er verkefni sprottið úr Iceland Unwrapped, sem hefur skipulagt ferðalög fyrir einstaklinga og hópa til og frá Íslandi til Hollands og víðar frá árinu 2015. Með Útþrá einbeitum við okkur að hópferðum sem skapa minningar og tengingar, hvort sem það eru ferðir fyrir vinnustaði, kóra, saumaklúbba, stórfjölskyldur, kennarahópa, listahópa eða vinahópa.

Fagmennska og persónuleg þjónusta í fyrirrúmi

Við vinnum náið með reyndum samstarfsaðilum á hverjum áfangastað til að tryggja hágæða upplifun sem er sniðin að þörfum hvers hóps.

Ferðirnar okkar eru persónulegar, vel skipulagðar og fagmannlega unnar – hvort sem tilgangurinn er slökun, skemmtun, fræðsla eða fagleg tengslamyndun.

Fagleg tengsl og alþjóðleg þróun

Hópar úr heilbrigðisgeiranum, menntakerfinu og tæknigeiranum hafa með okkar aðstoð tekið þátt í ferðum sem hafa opnað dyr að faglegu samstarfi við sérfræðinga erlendis – sérstaklega í Hollandi. Slíkar ferðir hafa reynst ómetanlegar fyrir þróun, speglun og nýsköpun á ýmsum sviðum.

Ógleymanlegar upplifanir og tengingar

Ég heiti Helga Kristín Friðjónsdóttir en er alltaf kölluð Helga Stína. Ég hef verið svo lánsöm að hafa fengið tækifæri til að starfa sem ferðafrömuður síðastliðin tíu ár í Hollandi og á Íslandi.

Markmið mitt fyrir alla mína viðskiptavini er að skapa ógleymanlega og einstaka upplifun og tengingu við áfangastaðinn og þá sem þar búa, hvort sem um er að ræða sérfræðihópa eða aðra hópa.

Ég er mikill ferðalangur sjálf og hef þar að auki búið í fimm löndum, Danmörku, Portúgal, Brasilíu, Hollandi og Austurríki.

Hægt er að finna frekari upplýsingar um mig á ensku á Linkedin og á heimasíðu Iceland Unwrapped.

Hafðu endilega samband við okkur á hs@helgastina.com eða bókaðu samtal hér.

Hvernig og með hverjum vinnum við

Persónuleg nálgun, fagmennska og framsýni er það sem einkennir okkar ferðir. Markmiðið er alltaf að tengja fólk og skapa upplifun sem er ógleymanleg og sem skilur eitthvað eftir sig.

Við höfum unnið með fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum í skipulagi allskonar ferða til og frá Íslandi. Má þar nefna hvataferðir, námskeið, ráðstefnur, fundir, námsferðir, skemmtiferðir, söngferðir, dansferðir og aðrar áhugasviðs ferðir, stórafmæli, hópferðir vinahópa, matarferðir, fjölskylduferðir og svo mætti lengi telja.

GILDIN OKKAR ERU SKÝR

Fagmennska

Einstakar upplifanir

Persónuleg þjónusta

Framsýni

Ef þú þekkir hóp sem er að íhuga ferðalag – eða finnur sjálfur fyrir útþrá – þá endilega hafðu samband eða vísaðu á okkur. Við tökum á móti öllum fyrirspurnum með opnum örmum.

Vitnisburður