Hvernig líst þér á að upplifa
litadýrð vorsins í Hollandi?
Útþrá býður upp á blóma og upplifunarferð til Hollands í apríl 2027.
Dagsetning: 8. til 12. apríl (4 nætur)
Við gistum á yndislegu hóteli í hinum fallega miðaldabæ Delft sem er staðsettur í nágrenni Rotterdam og Haag. Delft er einungis í 40 mínútna akstri frá Schiphol flugvelli.

Við gistum á yndislegu hóteli í hinum fallega miðaldabæ Delft sem er staðsettur í nágrenni Rotterdam og Haag. Delft er einungis í 40 mínútna akstri frá Schiphol flugvelli.

Í Delft er yndislegt andrúmsloft, síki um allt, markaðir, margir góðir veitingastaðir, kaffihús og fallegar litlar verslanir.
Frá Delft ætlum við að skoða fallega blómagarða og engi, skoða vindmyllur, borða góðan mat, hitta skemmtilegt fólk og njóta saman vorsins fallega.

Frá Delft ætlum við að skoða fallega blómagarða og engi, skoða vindmyllur, borða góðan mat, hitta skemmtilegt fólk og njóta saman vorsins fallega.
Innifalið
Fararstýra er Helga Kristín Friðjónsdóttir eigandi Útþrár

Flug fram og tilbaka til Amsterdam - ein innrituð taska og handfarangur

Gisting í fjórar nætur með morgunverði á yndislegum stað í fallegum miðaldabæ

Ferðir til og frá flugvelli í Hollandi

Ferðir í túlípana garðinn og á falleg túlípanaengi

Ferð í vindmyllugarð

Kvöldverður fyrsta kvöldið

Hádegisverður við síkið og bátsferð á síkjum Delft undir leiðsögn á sunnudeginum

